Landsteinar Strengur er í eigu Teymis hf. Nánari upplýsingar um Teymi er að finna á www.teymi.is. Innan samstæðunnar eru dótturfélögin Vodafone, Kögun, Skýrr, Eskill, Landsteinar Strengur, Hugur/Ax og EJS auk P/F Kall í Færeyjum, Mömmu og Tal.
a) Landsteinar Strengur ehf (kt:4607820589) er dótturfélag Teymis hf. Teymi hf. og öllum dótturfélögum þess eins og þau eru á hverjum tíma, er heimilt að skuldajafna kröfum annarra dótturfélaga við þær kröfur sem viðskiptaaðili á gagnvart þeim. Nánar tiltekið er öllum dótturfélögum Teymis hf. heimilt að skuldajafna við kröfur sem viðskiptaaðili á gagnvart þeim öllum kröfum sem önnur dótturfélög Teymis hf. eiga gagnvart viðskiptaaðilanum. Á þann veg er fjárhagslegt uppgjör milli dótturfélaga Teymis hf. og viðskiptaaðila einfaldað.