Alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi með einföldu og hnitmiðuðu notendaviðmóti. Aðlögunarmöguleikar kerfisins eiga sér enga hliðstæðu og sveigjanleiki þess gerir kleift að laga kerfið að hvers konar viðskiptum. Hentar mjög vel frá litlum til millistórra fyrirtækja sem eru í framleiðslu-, heildsölu-, smásölu-, dreifingu- og þjónustu og skiptir þá ekki máli hvort þau starfi einungis á innanlandsmarkaði eða í mörgum löndum.
BRL BE (Business Essentials) inniheldur m.a. aðgang að fjárhags-, sölu-, lánadrottnabókhaldi, birgðakerfi. BRL AM (Advanced Management) inniheldur BE leyfið og við bætist CRM kerfi, verkbókhald, fleiri hönnunareindir. Nánar um leyfismál
Landsteinar Strengur hefur hannað fjölda sérkerfa ofan á Dynamics NAV fyrir hinn íslenska markað, svo sem laun-, samþykkta-, verkbókhalds-, tolla- og innheimtukerfi, svo eitthvað sé nefnt. Nánar um sérkerfin