Mode:         
   Venjulegt letur Stórt letur Mjög stórt letur

Þjónusta

Þjónustutenging

Til að hjálpa okkur að veita betri þjónustu hefur Skýrr sett saman lítið forrit sem leyfir okkur að tengjast einstökum vélum viðskiptavina. Fer tengingin þannig fram að viðskiptavinurinn keyrir forritið og velur hvaða þjónustufulltrúa þeir vilja tengjast. Fær þá viðkomandi þjónustufulltrúi aðgang að skjáborði viðkomandi vélar og getur sent skrár á milli. Þjónustuborðið hefur ekki aðgang til að tengjast vélum án leyfis þess sem keyrir upp forritð og þegar slökkt er á því fjarlægir það sig sjálft og slekkur á fjarþjónustunni.

Athugið samt að notkun svona forrita getur brotið gegn umgengisreglum þeim sem settar hafa verið á tölvukerfi þíns fyrirtækis, leitið því leyfis frá kerfisstjóra áður en þið notið forritið.

Tengingin fer þannig fram að sendur er svokallaður VNC server (http://ultravnc.sourceforge.net/) á viðkomandi útstöð og látinn tengjast inn til Landsteina Strengs. Með þessu móti er auðveldara að komast út gegnum eldveggi. Á meðan þjónustutengingarforritið er opið er möguleiki á að tengjast viðkomandi útstöð með öðrum VNC biðlara án lykilorðs en þegar forritinu er lokað er slökkt á þjóninum og hann fjarlægður

Tvær breytingar á stillingum eru gerðar tímabundið á meðan tenging er í gangi, opnað er gat á eldvegg WindowsXP fyrir VNC þjóninn til að tengjast út og slökkt er á lykilorðavernd á VNC server ef slíkur þjónn var áður á vélinni. Báðum þessum atriðum er breytt í fyrra horf þegar slökkt er á forritinu aftur.
 

Leiðbeiningar:

Smelltu á linkinn hér að neðan, þá opnast File Download gluggi og skal þá velja Open eða Run. Opnast þá Þjónustuborð Landsteina Strengs og boðið er upp á að velja viðkomandi þjónustufulltrúa, hakað er við viðkomandi og smellt á tengjast.

Þjónustutenging
© 2005 Skýrr - Vefstjóri
Ármúli 2, 108 Reykjavík · Sími: 569 5100 · Fax: 569 5251
   
DotNetNuke® is copyright 2002-2012 by DotNetNuke Corporation   Birting 0.3593727 sek.