Mode:         
   Venjulegt letur Stórt letur Mjög stórt letur

Þjónusta

Þjónustustefna Skýrr

Í hverju felst þjónusta Skýrr?
Skýrr hefur sett sér það markmið að veita framúrskarandi þjónustu. Þjónustudeildin hefur það verkefni að taka á móti þjónustubeiðnum, leita úrlausna og fylgjast með því að þær séu framkvæmdar fljótt og vel. Sérfræðingar þjónustudeildar veita símaþjónustu, notendaaðstoð og leiðbeina um notkun hugbúnaðarins. Til þess að auðvelda þessa aðstoð geta sérfræðingar opnað afrit af gagnasafni viðskiptavinar og í sumum tilvikum er bein tenging til viðskiptavinar sem auðveldar þjónustuna enn frekar.Þjónustudeildin heldur einnig námskeið og sinnir aðlögunum og breytingum á viðskiptahugbúnaðinum. Skýrr býður viðskiptavinum sínum möguleika á að yfirtaka tölvu notandans sem flýtir fyrir úrlausn vandamála og auðveldar leiðbeiningar.

Þjónustudeildin er greið leið viðskiptavina með hvers konar mál sem tengjast búnaðinum. Þjónustudeildin heldur utan um allar verkbeiðnir sem koma frá viðskiptavinum og hefur jafnframt aðgang að öllum sérfræðingum Skýrr um úrlausnir vandamála. Þannig hafa sérfræðingar þjónustudeildar góða yfirsýn yfir lausnir vandamála og geta því bent á lausnir þótt þær séu ekki tengdar Navision.

Hvernig er skipulagi þjónustudeildar háttað?
Í þjónustudeild starfa hugbúnaðarsérfræðingar sem taka við fyrirspurnum og þjónustubeiðnum í gegnum síma og tölvupóst. Allar fyrirspurnir sem berast eru skráðar. Í fyrirspurnarkerfi eru fyrirspurnirnar skráðar og úrlausnir þeirra, tíminn þegar fyrirspurn var móttekin og hvenær úrlausn lauk og hvaða sérfræðingar komu að verkinu. Þetta gefur yfirsýn yfir hvaða vandamál eru að koma upp hjá viðskiptavinum og veitir einnig upplýsingar um viðbragðstíma.

Hver eru áhersluatriðin í þjónustunni?
Það skiptir miklu máli að veita skjóta og örugga þjónustu og að hafa skilning á þörfum viðskiptavinarins. Þá er mikilvægt að mynda góð persónuleg tengsl við viðskiptavini og að það ríki gagnkvæmt traust milli aðila og að þjónustudeildin þekki vel til starfsemi viðskiptavina. Einnig er lögð rík áhersla á að staðla vinnubrögð þjónustudeildar þannig að það skipti ekki máli hvaða sérfræðingur þjónustudeildar sé á símavakt og að það sé auðvelt að sjá hvaða mál eru í gangi og að allir geti gengið inn í verk hvers annars.

Hver er ávinningurinn fyrir viðskiptavini að vera með samstarfssamning við Skýrr?
Samstarfssamningur veitir viðskiptavinum þjónustu í síma á þjónustutíma Skýrr. Sú þjónustu felur í sér leiðbeiningar við vandamálum sem upp koma og úrlausn einfaldari mála, þó ekki kennslu. Þjónusta í síma felur einnig í sér móttöku og skráningu verkbeiðna. Þjónustusamningur veitir einnig afslátt af vinnu hugbúnaðarsérfræðinga og 25% afslátt af öllum almennum námskeiðum Skýrr. Þá eru þjónustuheimsóknir innifaldar í samstarfssamningi og samstarfsaðilar geta fengið aðgang að þjónustuvef Landsteina Strengs. Samstarfsaðilar fá einnig sent reglulega þjónusturit með hagnýtum upplýsingum í tölvupósti. Fyrir þessa þjónustu greiða samstarfsaðilar mánaðarlegt gjald sem er reiknað útfrá verðmæti kerfiseininga.

Hver er ávinningur af þjónustuheimsóknunum?
Það er mjög gagnlegt að fara í þjónustuheimsóknir og kynnast viðskiptavinum og starfsemi samstarfsaðila. Í þjónustuheimsóknum er fjallað um þjónustuna, samskipti samstarfsaðila og Skýrr og tengd málefni.

Hvert er markmiðið með þjónusturiti á tölvutæku formi?
Þjónustukönnun sem gerð var meðal samstarfsaðila leiddi í ljós að mikill áhugi er meðal viðskiptavina á því að fá þjónustuefni sent á tölvupósti. Því gefur Skýrr nú reglulega út þjónusturit á tölvutæku formi, með nýjustu fréttum og hagnýtum notkunarleiðbeiningum til þeirra sem eru með gildan samstarfssamning. Þjónusturitið er sent í tölvupósti.

Hvernig er námskeiðahaldi háttað? 
Skýrr býður gott úrval námskeiða. Námskeiðin eru haldin í vel útbúinni kennslustofu í húsakynnum Skýrr. Um er að ræða skipulagða námskeiðadagskrá yfir vetrartímann frá september til júní og liggur dagskráin fyrir haustönn fyrir í byrjun september og fyrir vorönn í janúar á hverju ári. Þannig eru grunn- og framhaldsnámskeið boðin mánaðarlega ásamt öðrum sérhæfðari námskeiðum, s.s. í verslunarkerfi, verkbókhaldi, tollakerfi, ODBC og glugga- og skýrsluhönnun. Samstarfsaðilum stendur til boða að fá sérsniðin námskeið, þar sem dagskrá og efni námskeiðsins er ákveðin í samvinnu við þá og með þeirra þarfir í fyrirrúmi. Slík sérnámskeið geta verið á þeim tíma sem samstarfsaðila hentar best. 

Hvað er uppfærslusamningur?
Uppfærslusamningar eru gerðir við Microsoft, en Skýrr hefur milligöngu um að koma þeim á. Samningurinn veitir rétt til að nýta allar nýjar útgáfur sem koma á meðan samningurinn er í gildi, en innifelur þó ekki vinnuna sem felst í því að uppfæra kerfið. Fyrir hana þarf að greiða sérstaklega. Samkvæmt samningi eru uppfærslugjöld greidd einu sinni á ári fyrir eitt ár í senn fram í tímann. Þau nema x% af verðlistaverði hugbúnaðarins ef þau eru greidd eitt ár fram í tímann, en x% fyrir hvert ár sem liðið er frá kaupdegi ef gengið er frá samningi eftir á.
 
 

© 2005 Skýrr - Vefstjóri
Ármúli 2, 108 Reykjavík · Sími: 569 5100 · Fax: 569 5251
   
DotNetNuke® is copyright 2002-2012 by DotNetNuke Corporation   Birting 0.3437478 sek.